Útivist | 23. ágúst 2010 | 09:25:04
Vel mætt í síðustu Reykjanesgöngu sumarins
Reykjanesgönguferðir Rannveigar L. Garðarsdóttur voru vel sóttar í sumar en gönguröðinni lauk síðasta miðvikudagskvöld þegar gengið var upp á Þorbjörn og þaðan sem leið lá niður að Baðsvelli og orkuverinu í Svartsengi. Þar var göngufólki boðið upp á grill og ofan í Bláa lónið.
Þetta var þriðja sumarið í röð sem boðið var upp á þessar gönguferðir undir stjórn Rannveigar en samstarfsaðilar eru HS Orka, Geysir Green Energy, Norðurál, SBK, Víkurfréttir, Björgunarsveitina Suðurnes og Bláa Lónið.
Ljósmyndir úr síðustu göngunni eru komnar inn á ljósmyndavef Víkurfrétta hér
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: