Útivist | 6. júlí 2010 | 16:43:21
Keflavík íþrótta- og ungmennafélag býður upp á gönguferð á Þorbjörn
Fimmtudaginn 8. júlí býður Keflavík íþrótta- og ungmennafélag upp á gönguferð á Þorbjörn undir leiðsögn Rannveigar Garðarsdóttur leiðsögumanns. Gönguferðin er liður í verkefninu „Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga!“ sem fer fram dagana 5. júní til 16. september 2010. Verkefnið stendur því yfir í 103 daga en í ár eru liðin 103 ár frá stofnun UMFÍ, gönguferðin er einnig liður í verkefninu „Helgi á göngu“ sem er verkefni til minningar um gönguforkólfinn og ungmennafélagann Helga Magnús Arngrímsson. Verkefnið gengur útá skipulagðar gönguferðir á vegum sambandsaðila UMFÍ.
Mæting við vatnstankinn við Þorbjörn kl 18:00
Gangan tekur u.þ.b 3 klst
Kostnaður: engin
Allir velkomnir
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: