Útivist | 22. júní 2010 | 19:39:22
Reykjanesgönguferð, Skógfellavegur
Miðvikudaginn 24. júní verður farin fjórða Reykjenesgönguferð sumarsins. Genginn verður Skógfellavegur gömul þjóðleið sem liggur á milli Grindavíkur og Voga, leiðin var notuð til ársins 1920 þegar Grindavíkurvegurinn var lagður.
Byrjað verður við Þorbjarnarfell og gengið þaðan upp með Hagafelli inn á Skógfellaveginn endað verður við Reykjanesbraut ofan við Voga.
ATHUGIÐ BREYTTA TÍMASETNINGU Lagt verður af stað frá SBK kl. 17:00.
Gönguvegalengd: 15 km
Göngutími: 5 - 6 klst.
Heilræði
* Drykkjarföng.
* Léttan bakpoka.
* Viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri (t.d. aukapeysu, sokka, vettlinga, húfu).
* Létt nesti (t.d. samloku, ávexti, kex).
* Góðir gönguskór.
* Göngustafi.
* Góða skapið.
Munið
Upphafsstaður: SBK, Grófin 2-4.
Hvenær: miðvikudag kl. 17:00.
Kostnaður: 1000 kr.
Leiðsögumaður: Rannveig L. Garðarsdóttir, nanny723@gmail.com, Sími: 893 8900