Útivist | 22. júní 2010 | 13:54:18
Myndir frá þriðju Reykjanesgöngu sumarsins
Gengið var meðfram sjávarsíðunni milli Sandgerðis og Garðskagavita í þriðju Reykjanesgöngu sumarsins undir stjórn Rannveigar Garðarsdóttur, leiðsögumanns. Ströndin er rík af sögu allt frá landnámi, sem göngufólk fékk innsýn í.
Í næstu göngu, sem er annað kvöld, verður farið eftir Skógfellavegi sem er gömul þjóðleið milli Grindavíkur og Voga. Gengið verður upp með Hagafelli inn á Skógfellaveginn og endað við Reykjanesbraut ofan Voga. Ef vindátt verður gagnstæð verður byrjað við Reykjanesbraut ofan Voga og gengið að Hagafelli. Lagt verður af stað kl 17:00, leiðin er 16 km. löng og tekur um tekur 5 - 6 klst.
Ljósmyndir frá síðustu göngu eru komnar inn á ljósmyndavef Víkurfrétta á vf.is
Sjá myndir hér
Sjá nánar um göngurnar hér
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: