Útivist | 7. júlí 2009 | 19:51:49
7. Reykjanes Gönguferðin gengin á miðvikudag
Miðvkudaginn 8. júlí verður farin sjöunda Reykjanes Gönguferðin í sumar. Gengið verður frá Reykjanesvita í gegnum Stampahraun að Sandvík m.a verður skoðaður gamall vegur sem lagður var þegar fyrsti Reykjanesvitinn var byggður. Leiðin er hluti af fyrstu dagleiðinni á gönguleiðinni Reykjavegi sem liggur frá Reykjanesvita til Þingvalla. Jarðfræðingar frá Hitaveitu Suðurnesja verða með í för og munu fræða göngufólk um jarðfræði svæðisins sem er mjög áhugaverð.
Leiðsögumaður verður Rannveig L. Garðarsdóttir
Gangan tekur um það bil 3 klst
Heilræði
* Drykkjarföng.
* Léttan bakpoka.
* Viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri (t.d. aukapeysu, sokka, vettlinga, húfu).
* Létt nesti (t.d. samloku, ávexti, kex).
* Góðir gönguskór.
* Göngustafi.
* Góða skapið.
Munið
Upphafsstaður: SBK, Grófin 2-4.
Hvenær: miðvikudaga kl. 19:00.
Kostnaður: 1000 kr.