Útivist | 9. júní 2009 | 14:10:08
Reykjanesganga frá Garði til Sandgerðis
Reykjanes – ganga, fjöruganga Garður Sandgerði
Miðvikudaginn 10. júní verður gengin ströndin frá Garðskagavita til Sandgerðis.
Gengið verður í sandi og lausagrjóti. Gangan er við hæfi allrar fjölskyldunnar. Sagt verður frá viðburðarríkum atburðum sem tengjast sögu Íslendinga sem gerðust á þessum slóðum, einnig verður sagt frá landnámsmönnum sem búsettir voru á þessu svæði.
Heilræði
* Drykkjarföng.
* Léttan bakpoka.
* Viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri (t.d. aukapeysu, sokka, vettlinga, húfu).
* Létt nesti (t.d. samloku, ávexti, kex).
* Góðir gönguskór.
* Göngustafi.
* Góða skapið.
Munið
Upphafsstaður: SBK, Grófin 2-4.
Hvenær: miðvikudaga kl. 19:00.
Kostnaður: 1000 kr.