Sjávarútvegur | 1. september 2010 | 09:53:11
Grindavík þriðja kvótamesta höfnin
Nýtt fiskveiðiár gengur í garð í dag. Líkt og í fyrra fer stærstur hluti aflamarks í þorskígildum talið til skipa með heimahöfn í Reykjavík, næst mest til Vestmannaeyja, og þar næst Grindavíkur. Alls fara um 34% aflamarks til skipa með heimahöfn á þessum stöðum, samkvæmt því sem fram kemur í frétt á vef Fiskistofu.
Þorbjörn hf í Grindavík ræður yfir 15.013.651 þorskígildistonnum sem er 5,55% hlutdeild heildaraflamarks. Þorbjörn er þar með í fjórða sæti yfir þau fyrirtæki sem ráða yfir mesta kvótanum. Vísir í Grindavík er í sjötta sæti með 11.570.805 þorskígildi sem gerir 4,28% hlutdeild.
Þrjú stærstu fyrirtækin eru HB Grandi, Brim og Samherji. Alls er úthlutað 288.042 tonnum, samanborið við 310.451 tonn, sem úthlutað var við upphaf síðasta fiskveiðiárs.
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: