Sjávarútvegur | 27. október 2008 | 16:20:32
Sandgerði og Garði endurúthlutað byggðakvóta
Fiskistofa hefur nú lokið endurúthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2006/2007, og er úthlutun byggðakvóta þess fiskveiðiárs því endanlega lokið, að því er fram kemur á heimasíðu Fiskistofu. Samtals var úthlutað 4.213.637 þorskígildiskílóum, sem skipt var milli byggðarlaga. Sandgerði og Sveitarflélagið Garður fengu úthlutað samtals 186 tonnum þar af fékk Garður 150 tonn.
Byggðakvótinn er eyrnamerktur skipum og var skiptingin eins og segir hér að neðan:
Sandgerði: = 36 tonn
Óli Gísla GK 112 19.755 kg.
Ísbjörn GK 87 8.657
Líf GK 67 7.587
Garður: = 150 tonn.
Gunnar Hámundarson GK 357 = 15.121
Sóley Sigurjóns GK 200 = 17.785
Sigurfari GK 138 = 15.834
Berglín GK 300 = 17.251
Baldvin Njálsson GK 400 = 18.451
Benni Sæm GK 26 = 15.661
Siggi Bjarna GK 5 = 15.794
Dóri GK 42 = 15.509
Alla GK 51 = 4.874
Faxi GK 84 =4.966
Magnús GK 64 =8.754