Ritstjórnarpistill | 27. október 2011 | 16:34:25
Kraftmiklar konur

Mörgum er sjálfsagt huglægt um málefni HSS um þessar mundir. En stofnunin hefur verið gert að draga saman um 73 milljónir. Stöðugildum verður fækkað um 15-17 og einnig verða gerðar töluverðar skipulagsbreytingar til að mæta lækkun fjárveitingar. Stendur það til að byrja að fækka starfsfólki strax um næstu mánaðamót. Árni Sigfússon er harðorður í viðtali við Morgunblaðið og þar lætur hann hafa eftir sér að ósanngjarnt sé að nefna stofnunina nafninu Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í ljósi niðurskurðar sem þar er fyrirhugaður í nýju fjárlagafrumvarpi. Hann segir ennfremur að ríkið verði að huga að heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjunum allt frá grunni.

Maður skynjar það að margir taka í sama streng og bæjarstóri Reykjanesbæjar enda eru Suðurnesin svæði sem þarf á góðri heilbrigðisþjónustu að halda, með fjölda íbúa og ferðamanna sem heimsækja alþjóðaflugvöll okkar Íslendinga. Margir halda eflaust að það sé varla hægt að fækka starfsfólki á sjúkrahúsinu, hvað þá að minnka við þjónustuna sem er nánast ekki orðin að neinu.

Svo er það með þetta eins og annars staðar, alltaf er byrjað á því að skera niður á botninum en flest stöðugildi sem glatast verða í ræstingunum og stendur til að bjóða þær út að nýju.

Ætli þetta endi þannig að íbúar Suðurnesja þurfi að sækja heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðið?

Af annars konar heilsutengdu efni. Í blaðinu í dag er viðtal við eina af þessum hraustu Suðurnesjakonum sem virðast vaxa á hverju strái. Þar er ég að sjálfsögðu að tala um hana Kiddý sem hefur unnið hverja hreystikeppnina á fætur annarri og jafnframt hefur hún komið hundruðum, jafnvel þúsundum Suðurnesjamönnum í gott stand, enda starfar hún sem íþróttakennari hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja ásamt því að þjálfa hjá Lífsstíl.

Þar ræðum við Kiddý um heilsu fólks og þá vakningu sem virðist vera í þeim málum hérlendis. Ég hafði alla vega þá tilfinningu að allir væru að taka sig rosalega á í mataræðinu og allir væru sveittir í ræktinni 5 sinnum í viku. Svo heyrði ég í sjónvarpsfréttum að Ísland sé næstfeitasta þjóð í heimi! Nú á tímum hefur aldrei verið meiri vitneskja um hvað þú eigir að láta ofan í þig og að það sé hreinlega nauðsynlegt að hreyfa sig daglega. Ástæðurnar fyrir þessu eru eflaust margar og ekki ætla ég að rekja þær upp hérna. En ég ætla hins vegar að nýta tækifærið og minna fólk á eitthvað sem kallast „Meistaramánuður.“ Tveir íslenskir nemar sem hvorki eru líkamsræktarfrömuðir né næringarfræðingar standa fyrir Meistaramánuðinum. Verkefnið snýst um það að þátttakendur taka mánuð í það að vakna fyrr, hreyfa sig, borða vel og njóta lífsins betur en ella. Sá mánuður kallast Meistaramánuður. Þetta snýst ekki endilega um það að borða bara ótrúlega hollan mat og svitna sex sinnum í viku í ræktinni, heldur snýst þetta að mínu mati frekar um það að setja sér markmið og takast á við áskoranir. Hvort sem þú ætlir að þrífa bílinn tvisvar í mánuðinum, hætta að kaupa gos og kex eða að taka 50 froskahopp á dag. Það skiptir í raun ekki máli, heldur gæti þetta orðið þér hvatning í því að hefja betra líferni. Þetta er ekki átak í mánuð, horfum frekar á þetta sem upphafið að einhverju sem heldur áfram um alla ævi. Vertu þinn eigin meistari, nei nú er ég hættur að predika, gerðu það sem þú vilt.