Q-MEN | 19. júlí 2010 | 15:56:15
Ekki í náðinni á Rás 2
Bríet Sunna Valdemarsdóttir söngkona úr Vogum hefur sent frá sér lagið „Þú varst mér allt“. Textinn er eftir hana sjálfa en lagið er eftir Halldór Guðjónsson. Samkvæmt fréttum DV hlaut lagið ekki náð fyrir eyrum Rásar 2, þar sem það félli ekki að þeirri árstíð sem nú er, en lagið yrði skoðað aftur í haust.
Bríet Sunna hefur gert lagið aðgengilegt á YouTube þar sem hún segir eftirfarandi:
Lagið heitir "Þú varst mér allt", ég samdi þennan texta til ástarinnar í mínu lífi.
Ég vil þakka Davíð Sigurgeirssyni fyrir frábært gítarspil og bassaleik, snillingur þar á ferð og frábær náungi.
Böðvar Reynisson hefur aðstoðað mig mikið við þetta lag. Ég vil þakka honum fyrir upptökur og alla vinnslu í kringum það og fyrir að syngja inn bakraddir.
Þetta lag vil ég tileinka tveimur ungum stúlkum er létu lífið í umferðarslysi fyrr á þessu ári og aðstandendum þeirra. Þær hétu Lena og Unnur, guð geymi þær og þeirra fjölskyldur. Við upptökur á þessu lagi reykaði hugur minn ávallt til þeirra og fjölskyldna þeirra.
Og ég vil þakka vinum mínum og fjölskyldu fyrir alla þá hjálp sem þau veittu mér við gerð þessa lags.. Það er mér mikið hjartansmál..
