Q-MEN | 5. júlí 2010 | 18:17:11
Appelsínubyssa - óvenjulegt skotvopn

Lögreglunni í Borgarfirði og Dölum barst í vikunni tilkynning um notkun óvenjulegs skotvopns á bæ einum í héraðinu. Þar höfðu ungir piltar útbúið sér skotvopn þar sem appelsínum var skotið langar leiðir úr plaströri. Skessuhorn greindi frá þessu. Þar segir að skotvopnið byggi á þekktri aðferð þar sem tiltekið gas sé notað til að skjóta kúlunni með, sem að þessu sinni hafi verið ávextir í ómældu magni.

Að sögn lögreglu var ekki mikið af skotföngum á staðnum en skotvopnið gert upptækt á grundvelli skotvopnalaga. Nú hefur myndband verið birt á myndbandaveitunni Youtube.com sem sýnir appelsínubyssuna. Hvort þetta er samskonar vopn og var notað fyrir vestan, er ekki vitað.