Q-MEN | 23. apríl 2010 | 10:21:51
Keflvísk kennslustund á AlJazeera
ay-uh-fyat-luh-yoe-kuutl-ul, þetta stóra, stílhreina og fallega nafn á eldstöðinni sem hefur sett Evrópu úr skorðum, hefur verið sannkallaður tungubrjótur hjá fréttamönnum heimspressunnar. Þeir átta sig sjálfir á því hversu framburður þeirra á nafninu er hræðilegur og hafa gert góðlátlegt grín af sjálfum sér.
Síðustu daga hafa stóru fréttastöðvarnar verið að kalla til Íslendinga til að kenna þeim framburðinn á „Eyjafjallajökull“. Alþjóðlega fréttastofan AlJazeera fékk hina keflvísku Elízu Geirsdóttur Newman til að segja frá nafninu „Eyjafjallajökull“ og kenna þeim framburðinn. Hún setti saman lag sem er hér meðfylgjandi.

Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: