Q-MEN | 24. mars 2010 | 17:29:16
Bein útsending frá eldgosi á vef Mílu

Míla hefur sett upp myndavélar við gossvæðið á Fimmvörðuhálsi, þar sem unnt er að fylgjast með framgangi gossins. Önnur myndavélin er staðsett í mastri Mílu á Hvolsvelli og hin er staðsett á Þórólfsfelli, sem er norðan megin við Eyjafjallajökul og enn nær gossvæðinu en Hvolsvöllur. Með þessum tveimur myndavélum næst góð yfirsýn yfir gossvæðið, beggja vegna frá.

Efnið frá myndavélunum er sent um sambönd Mílu á svæðinu.

Mynd frá Hvolsvelli er aðgengileg hér


Mynd frá Þórólfsfelli er aðgengileg hér