Q-MEN | 11. mars 2010 | 13:25:39
Flugvirkjar með Thriller-takta!
Flugvirkjar Icelandair hafa stórskemmtilegt myndband á YouTube myndveituna undir nafninu Filler Time. Ekki stendur á viðbrögðum og hafa á sjöunda þúsund skoðað myndbandið sem er allt hið vandaðasta, þar sem flugskýli ITS á Keflavíkurflugvelli er fyllt af reyk, gólfin bleytt og ljósasýning fyrir allan peninginn.
Einn áhorfandi á YouTube spyr reyndar hvort flugvirkjarnir hafi verið að gera myndbandið í verkfallinu á dögunum. Nú er bara að stilla hátalarana í botn og sjá og hlusta á Filler Time!

Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: