Þótt minna sé að gera vinnunni er engin ástæða til að láta sér leiðast. Það er hægt að vera hugmyndaríkur og skapandi þó verkefnin láti á sér standa. Okkur er sagt að þessi hugmynd hafi kviknað hjá starfsmanni ónefndrar fasteignasölu og ætlum við að deila henni með lesendum VF. 1. Finndu nokkrar dauðar flugur (í gluggakistunni eða í skúffunni) 2. Leggðu þær á heitan stað til að þurrka þær alveg, u.þ.b. klst. 3. Þegar þær eru orðnar alveg þurrar, þarftu bara pappírsörk og blýant. Leyfðu svo ímyndunaraflinu að njóta sín. Hér eru nokkur dæmi: