Q-MEN | 3. febrúar 2010 | 00:29:46
Íslenskri Facebook-stjörnu hótað lífláti
Íslensku Facebook-stjörnunni og fyrrum sjónvarpsþulunni Ragnheiði Elínu Clausen var í kvöld hótað lífláti með einkaskilaboðum á samskiptavefnum vinsæla.
Ragnheiður segir á síðunni sinni fyrir fáeinum mínútum: „það er virkilega maður hér að senda mér prívat skilaboð og hóta því að drepa mig ... á ég að hlæja?“.
Ekki stendur á viðbrögðum og Facebook-vinir Ragnheiðar hvetja hana til að tilkynna málið þegar til lögreglu, ásamt því að gera stjórnendum Facebook viðvart.
Ragnheiður Elín Clausen er vinsæll notandi Facebook, er þar með yfir 1800 vini og hefur reyndar orðið fyrir því að vera hent út af Facebook fyrir litlar sem engar sakir.
Ragnheiður segist ekki þekkja einstaklinginn sem hefur í hótunum við sig, en hún hafi samþykkt hann sem Facebook-vin fyrr í kvöld.
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: