Q-MEN | 31. janúar 2010 | 01:59:57
Fréttahaukur til Kanans
Það er engu líkara en svarti dauði hafi geysða á fjölmiðlum landsins og stráfellt flóru fréttamanna á síðustu mánuðum. Fjölmörg þekkt nöfn frétta- og blaðamanna hafa misst atvinnuna og ef stórhuga aðilar hafa áhuga á að stofna fjölmiðil þá ætti ekki að vera mikið mál að stilla upp flaggskipi blaðamanna.
Einn af þeim fréttamönnum sem lenti undir niðurskurðarhnífnum á síðasta ári var Haukur Holm, fréttamaður á Stöð 2 til margra ára. Hann er nú á leiðinni hingað Suður með sjó og mun hljóma á öldum ljósvakans og ljá fréttunum á Kananum FM 91,9 rödd sína. Samkvæmt nýrri sjónvarpsauglýsingu Kanans mun frétta-Haukurinn hefja störf á Kananum 1. mars nk.

Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: