Q-MEN | 28. janúar 2010 | 09:56:37
Ísbirnir og negrar í Þistilfirði
Það er ekki bara ísbirni sem rekur á land í Þistilfirði ef marka má fréttir, bæði nýjar og gamlar. Dagur greindi frá því í febrúar 1977 að maður frá Gana ynni á sveitabæ hjá bónda einum í Þistilfirði. Fyrirsögn fréttarinar var „Negri í Þistilfirði“.
Í fréttinni sagði greinarhöfundurinn frá því að maðurinn væri vetrarmaður hjá Jóhannesi Sigfússyni bónda á Gunnarsstöðum. Svo segir í fréttinni: „... sé ég daglega afríkunegra í snjó,og mun það líklega heldur sjaldgæf sjón hér á landi. Hann er frá Gana og er vetrarmaður hjá Jóhannesi. Þetta er kátur maður og er að venjast störfunum. En einn hlut óttast hann, og það er dýpt snjóskaflanna, sem hann álítur að hann muni e.t.v. festast í og ekki komast upp aftur, Ganabúinn er landeigandi, 32 ára gamall og er að búa sig undir kjötframleiðslu svína og sauða.“
Ganabúinn má þakka sínum sæla að hann var ekki skotinn á sínum tíma, eins sjaldséður og hann nú var.
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: