Q-MEN | 5. janúar 2010 | 11:18:13
Tiger ber að ofan á nýrri forsíðu Vanity Fair

Írafárið í kringum Tiger Woods ætlar engan endi að taka og nú hefur tímaritið Vanity Fair dregið fram ás úr erminni.

Í febrúarhefti blaðsins er mynd af Tiger, berum að ofan, en það var ljósmyndarinn heimsfrægi, Annie Leibovitz, sem tók myndina í janúar árið 2006.

Eins og sést á myndinni  í heild hér að neðan er Tiger með handlóð í sitthvorri hendinni en í blaðinu verður grein eftir Buzz Bissinger sem mun fjalla ítarlega um skrautlegt einkalíf kappans. Blaðið kemur út á allra næstu dögum.

EA Sports stendur með Tiger


Einnig er greint frá því að tölvuleikjarisinn EA Sports hyggist standa með Tiger er í gegnum þennan öldudal á hans ferli. Fyrirtækið hefur um nokkurra ára skeið gefið út tölvuleiki um golf sem eru með hans nafni og munu á næstu vikum í fyrsta sinn gefa út leik þar sem hægt verður að leika golf á netinu gegn öðrum kylfingum.

Og til gamans má geta þess að heimasíða Vanity Fair er ekki vf.is, heldur vf.com

Mynd/Vanity Fair: Tiger er í fyrsta sinn sýndur ber að ofan.