Q-MEN | 16. desember 2009 | 12:02:08
Gleðigjafinn og krúttsprengjan William Hung

Það verður ekki sagt um William Hung að hann sé góður söngvari, ó nei. En hann er sannkallaður gleðigjafi fyrir það sem hann er. Hann vann sér það til frægðar í ameríska Idol-inu fyrir nokkrum árum að vera afburða lélegur söngvari. En samt eitthvað svo einlægur og trúr sjálfum sér. Algjört krútt, finnst mörgum. Draumurinn um að verða frægur söngvari rættist en á allt öðrum forsendum en hann lagði upp með.
Í þessu myndbandi heyrum við William Hung flytja lagið You Raise me up. Þegar Josh Groban flutti lagið fyrir nokkrum árum fékk maður gæsahúð. Willam Hung tekst líka að framkalla gæsahúð í sínum flutningi. Bara öðruvísi gæsahúð....
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: