Q-MEN | 10. desember 2009 | 11:32:39
The Charlies á Kananum
Það var heldur betur gestagangur í morgunþættinum Egg og beikon á útvarpssstöðinni Kananum í morgun. Þangað voru mættar stúlkurnar í Nylon í þeim tilgangi einum að skila Einari Bárðarsyni, útvarpsstjóra og morgunhana, nafninu Nylon og svipta hulunni af nýju nafni stúlknasveitarinnar.
Þær heita frá og með deginum í dag The Charlies og munu á næstu dögum halda í víking til vesturheims. Þar hefur hljómsveitin landað útgáfusamningi við plötufyrirtækið Hollywood Records sem tilheyrir Disney-samsteypunni.
The Charlies tóku lagið órafmagnað og hljóðfæralaust á Kananum í morgun.

Eftir útsendingu stilltu þær sér upp með Einari Bárðarsyni og tæknitröllinu og útvarpsröddinni, Dóra dimmraddaða.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: