Q-MEN | 16. nóvember 2009 | 13:22:44
Kraftaverk salernispappírs

Hrein og fersk  eftir sturtu, stóð ég framanvið spegilinn, ég virti fyrir mér brjóstin á mér og að vanda kvartaði ég yfir því hvað þau eru smá!

Í stað venjulega svarsins um að brjóstin á mér væru  ekkert smá, breytti maðurinn minn út af venjunni og kom með  tillögu.

"Viljir þú að brjóstin stækki, skaltu daglega nudda  salernispappír á milli þeirra í nokkrar sekúndur."

Þar sem að ég  vildi reyna hvað sem væri, sótti ég mér blað af salernispappír og stóð síðan  framan við spegilinn, nuddandi því á ?milli brjóstanna  minna.

"Hvað þarf ég að gera þetta oft"  Spurði  ég.

"Þau munu vaxa þeim mun meira sem þú gerir þetta oftar,"  svaraði kallinn minn.

 Ég hætti.

"Trúirðu því virkilega  að mér nægi að nudda klósettpappír á milli brjóstanna daglega til þess að fá  þau til að stækka?"

Án þess að líta upp svaraði  hann, ---  "Virkaði á rassinn á þér, ekki satt?"

Hann lifir enn og með mikilli sjúkrameðferð getur verið að hann gangi á ný, jafnvel þótt hann muni áfram fá sína næringu um strá.