Q-MEN | 9. nóvember 2009 | 18:08:15
Svangir og auralausir KR-ingar...

Eitthvað fór tvöfalt tap KR-inga fyrir Njarðvíkingum í körfuknattleikjum síðustu viku illa í þá svart/hvítu. Njarðvíkingar báru fyrst sigurorð af KR í byrjun síðustu viku í deildinni og svo aftur í Subwaybikanum sl. föstudagskvöld. Njarðvíkingar hafa þann góða sið að bjóða gestum sínum upp á veitingar í lok leiks og það sem meira er í bikarnum, þá fá gestirnir jafnframt helminginn af öllum aðgangseyri.

KR-ingar létu hins vegar ekki sjá sig í boðinu eftir leik og skildu eftir sinn helming af aðgangseyrinum og virðast hafa brunað beint í bæinn, svangir og auralausir...