Q-MEN | 3. nóvember 2009 | 13:54:05
Tyrkneskt hakk og Tyrkja-Gudda í Grindavík

Gárungarnir voru fljótir að nefna stúlkuna á myndinni sem birtist á vef Ungmennafélags Grindavíkur, umfg.is, eftir að tyrkneskur hakkari hafði farið óblíðum höndum um síðuna sl. nótt. Fékk stúlkan nafnið Tyrkja-Gudda.


Hvort „tyrkneska hakkið“ frá því í nótt sé Tyrkjaránið hið síðara á sagan eftir að leiða í ljós. Það voru reyndar ódæðismenn frá Alsír sem stóðu fyrir glæpnum hér fyrr á öldum þar sem meðal annars var ráðist á landi í Grindavík og sögubækur fjalla um sem Tyrkjaránið.


Grindvíkingingum var komið á óvart í morgun og varnirnar ekki í lagi. Vefsíða Ungmennafélagsins er komin upp að nýju, þannig að skaðinn hefur ekki verið mikill þó svo „Tyrkja-Gudda“ hafi horft bænaraugum framan í lesendur umfg.is um tíma í morgun.