Q-MEN | 26. október 2009 | 12:02:04
Ósýnilegi maðurinn – ótrúlegar myndir
Kínverjinn og ljósmyndarinn Liu Bolin gengur undir nafninu Ósýnilegi maðurinn. Og ekki að ástæðulausu. Hann fellur svo vel inn í umhverfið sem hann ljósmyndar að erfitt getur verið að koma auga á hann.
Liu Bolin eyðir allt að 10 klukktustundum í undirbúning hverrar myndatöku. Hann notar nefnilega ekki Photoshop heldur málningu til að gera sig ósýnilegan. Hann sumsé málar sjálfan sig inn í umhverfið.
Hér má sjá afraksturinn af þessu óvenjulega ljósmyndastússi Kínverjans:
http://v1kram.posterous.com/liu-bolinthe-invisible-man

Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: