Q-MEN | 8. september 2009 | 12:08:33
Sjúkrahúsið á Ásbrú sviðsmynd GusGus

Gamla hersjúkrahúsið á Ásbrú hefur ekki verið í almennri notkun síðan Bandaríkjaher yfirgaf svæðið haustið 2006. Húsið hefur þó fundið sér ýmis verkefni og þar á meðal hefur það verið notað við tökur á kvikmynd Dags Kára, the Good Heart. Í sumar leigði hljómsveitin GusGus sjúkrahúsið í nokkra daga til þess að taka þar upp tónlistarmyndband. Myndbandið er nú komið út og er óhætt að segja að sjúkrahúsið skapi sérlega skemmtilega stemmningu í myndbandinu. Lagið hefur vakið mikla athygli enda um hörkuflott lag að ræða, segir á vef Ásbrúar, www.asbru.is
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan

Add This Song