Q-MEN | 16. ágúst 2009 | 16:35:40
Klest'ann!

Aðal tískubylgjan hjá unga fólkinu í dag er orðatiltækið "klest'ann" þar sem hnúfum er síðan skellt saman. Blaðinu barst til eyrna skondin eða neyðarleg saga af þessu uppátæki unga fólksins hér Suður með sjó fyrr í sumar.

Tveir félagar mættust á rúntinum þar sem ökumaður annars bílsins gerði sig breiðan, stakk sér hálfum út úr bílnum og kallaði til félaga síns "klest'ann" um leið og hann rak hnefann út í loftið. Ekki tókst betur til en svo að ökumaðurinn hafði enga stjórn á bíl sínum, stefndi beint á næsta staur og - að sjálfsögðu - "klest'ann" !