Q-MEN | 7. ágúst 2009 | 11:03:30
Allur vindur úr Tiger?

Svo virðist sem allur vindur sé úr Tiger Woods þar sem hann er á 18. braut á Buick Open-golfmótinu sem fram fór á dögunum. Myndatökumenn og aðallega hljóðmenn CBS Sport náðu að fanga augnablik þar sem einhver í nágrenni við myndatökuvélarnar leysir vind eða prumpar með glæsibrag. Bæði Tiger og kylfusveinninn hlæja að atvikinu eins og sjá má í meðfylgjandi upptöku sem birtist í morgunþætti Good Day LA.