Nafnið Jóhanna virðist ætla að verða sterkt í fréttum frá Íslandi þetta árið. Fyrsta skal nefna Jóhönnu forsætisráðherra sem vakið hefur heimsathygli fyrir störf sín og aðstæður Íslands. Þá kom hún Jóhanna júróvísjónfari og heillaði Evrópubúa upp úr skónum og landaði öðru sæti í söngvakeppninni evrópskra sjónvarpsstöðva. Nú er komin fram þriðja Jóhannan sem án efa á eftir að rata í fréttatíma víða um heim fyrir gjörðir sínar. Við erum að tala um hrefnuveiðiskipið Jóhönnu sem lagði úr höfn í Njarðvík í hádeginu og tók stefnu á fengsæl hrefnuveiðimið, en Jóhanna ÁR 206 tók stefnuna á Snæfellsjökul þegar hún var komin út úr höfninni í Njarðvík. Byssan var gerð klár í morgun og áhöfnin sagði ekkert því til fyrirstöðu að skjóta 3-4 dýr áður en haldið yrði í land að nýju. Dýrin verða skorin og verkuð úti á sjó og koma ísuð í körum til baka. Hvort hrefnukjötinu verður landað í Njarðvík, fékkst ekki gefið upp. Hins vegar má búast við nýju hrefnukjöti í kjötborðum verslana fljótlega, því vel viðrar til veiða, bæði í dag og á morgun. Ljósmyndir: Hilmar Bragi Bárðarson Horft beint upp í hlaupið á fallbyssu Jóhönnu ÁR. Jóhanna forsætisráðherra, Jóhanna Eurovisionfari og núna Jóhanna hrefnuveiðiskip... ... með byssuna klára í stafni. Verður fyrsta dýrið fallið í kvöld?