Q-MEN | 30. apríl 2009 | 15:16:37
Skemmtileg ljósmyndaramistök
Fréttatilkynningar eru daglegt brauð á ritstjórnum blaðanna. Í sumum tilvikum fylgja myndir með tilkynningunum. Yfirleitt eru það myndir frá undirskriftum eða öðru óspennandi. Í dag fengum við á Víkurfréttum fréttatilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ og henni fylgdu tvær myndir. Það verður að segjast að myndirnar, a.m.k. önnur þeirra, er með því skemmtilegasta sem sést hefur í margar vikur á ritstjórninni. Eru það aðallega hin stórskemmtilegu mistök sem ljósmyndarinn er að gera þegar hann er ekkert að velta fyrir sér því sem hangir uppi á vegg á bakvið dr. Þorstein Inga Sigfússon forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Við látum fréttina fljóta hérna með ásamt myndunum, ykkur til fróðleiks og vonandi skemmtunar.
Í dag fimmtudaginn 30. apríl skrifuðu Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði, Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ, Sigurður Magnússon bæjarstjóri á Álftanesi og Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands undir samning um rekstur frumkvöðlasetursins Kvikunnar. ? ?Kvikan verður opnuð þann 15. maí að Strandgötu 11 í Hafnarfirði. Í Kvikunni geta 10 - 15 einstaklingar fengið aðstöðu til að vinna að viðskiptahugmyndum undir faglegri handleiðslu sérfræðinga Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Kvikan veitir frumkvöðlum góða vinnuaðstöðu, tengslanet og stuðning til að stofna fyrirtæki. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað eru á vef Nýsköpunarmiðstöðvar www.nmi.is.
Mikil ánægja er með stofnun Kvikunnar og vænta menn mikils af starfi hennar og samstarfi sveitarfélaganna á þessu sviði. Kvikan er fjórða frumkvöðlasetrið á hálfu ári sem Nýsköpunarmiðstöð opnar á höfuðborgarsvæðinu og hefur starfsemi þeirra haft mikið að segja fyrir þá 60 einstaklinga sem þar hafa aðstöðu.

Þorsteinn Ingi Sigfússon með allt á hornum sér eða hvað?

Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: