Q-MEN | 22. apríl 2009 | 09:09:56
Riiiisastór smá-járnbrautalestagarður


Í Hamborg í Þýskalandi má finna þennan risastóra smá-járnbrautalestagarð þar sem eru nákvæmar eftirlíkingar af ýmsum stöðum í heiminum og mannvirkjum þar sem járnbrautalestir fara um. Þessi yfirbyggði járnbrautalestagarður er á 1100 fermetrum og það tók yfir 500.000 vinnustundir að gera garðinn að því sem hann er í dag. Öll smáatriði eru eins nákvæm og mögulegt er og þarna skiptast á dagur og nótt með viðeigandi ljósum á 15 mínútna fresti. Það er skylduáhorf á meðfylgjandi myndband til að upplifa stemmninguna.