Q-MEN | 5. mars 2009 | 16:41:46
Söngleikurinn Sódóma á svið á Vallarheiði

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja frumsýnir söngleikinn Sódóma í Andrews-leikhúsi á Vallarheiði á morgun, föstudaginn 6. mars. Söngleikurinn er samkvæmt handriti sem Felix Bergsson byggði á kvikmynd Óskars Jónassonar, Sódóma Reykjavík.

Um þrír tugir leikara og söngvara koma fram í sýningunni sem leikstjórinn Orri Hugi hefur stjórnað síðustu vikur. Þá er einnig stór hópur tæknifólks og tónlistarmanna sem vinna að uppsetningunni en Andrews-leikhús á Vallarheiði hefur tekið á sig svip Sódómu síðustu daga.

Nokkrar sýningar verða á söngleiknum en sýningartíma má nálgast á vef nemendafélagsins, www.nfs.is. Þá er miðasala í síma 846 0221.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á æfingu á Sódómu á Vallarheiði nú í vikunni. Myndband frá æfingu er einnig væntanlegt í Sjónvarp Víkurfrétta.