Q-MEN | 7. febrúar 2009 | 17:37:09
Hættulegar skyndisóknir úr kjarrinu?
Undirlendi er víða af skornum skammti. Víða eru hús byggð utan í hlíðum, því hverrgi er sléttan flöt að finna. Sagt er að rollurnar í Færeyjum séu með lengri hægri fætur en vinstri, eftir áralanga göngu í fjallshlíðum í eyjunum. Frægir eru fótboltavellir þar ytra fyrir að vera byggðir á uppfyllingum.
Meðfylgjandi mynd fengum við senda af einum fótboltavelli, en það fylgir ekki sögunni hvar myndin er tekin. Næsta víst að skyndisóknir úr kjarrinu utan við vítateiginn geta verið hættulegar…
Vinsamlegast afritið kóðann hér að neðan: