Pólitíkin | 5. mars 2010 | 14:39:27
Veljum nýtt fólk til að leiða lista Framsóknar

Á fjögurra ára fresti gefst landsmönnum tækifæri á því að kjósa þá flokka sem þeir vilja að stýri þeirra sveitarfélagi en því miður er kosningarkerfið þannig upp byggt í dag að ekki er hægt að hafa áhrif á uppröðun listans í sveitarstjórnarkosningunum sjálfum. Eftir átakatímabil í bæjarstjórn Grindavíkur síðustu fjögur ár töldu Framsóknarmenn í Grindavík að Grindvíkingar allir ættu rétt á því að velja þá einstaklinga sem leiða lista flokksins fyrir næstu kosningar burt séð frá því hvaða flokk þeir kjósa síðan í sjálfum sveitastjórnarkosningunum. Framsóknarflokkurinn býður því Grindvíkingum upp á einskonar persónukjör á laugardaginn.

Sjálf býð ég mig fram í 1. sæti listans. Helstu áherslur eins og kom fram í síðasta pistli mínum er ábyrg fjármálastjórn og aukið íbúalýðræði í bæjarfélaginu. Varðandi kosningaloforð þá eru þau einföld og skýr.

Í fyrsta lagi lofa ég að hlusta ávallt meira en ég tala. Til að ná þessu markmiði þá hef ég meðal annars lofað því að komist ég í bæjarstjórn verði ég með reglulega viðtalstíma þar sem öllum bæjarbúum gefst kostur á að tala við mig í einrúmi um málefni bæjarins.

Í öðru lagi lofa ég að vinna í öllum málum af einlægni og starfa ávalt með heiðarleika og hagsmuni Grindavíkur að leiðarljósi.

Það er mín von að Grindvíkingar nýti sér þetta tækifæri til að tryggja nýliðun í efstu sætum á lista framsóknarmanna. Það er nauðsynlegt að koma á bættum vinnubrögðum innan bæjarstjórnar og tímabært að ný kynslóð taki við keflinu. Síðan ég hóf að starfa af fullum krafti í stjórnmálum árið 2007 hef ég ávalt barist fyrir bættum vinnubrögðum innan stjórnmálaflokka. Ég hef barist fyrir bæði auknu lýðræði innan Framsóknarflokksins sem og auknu íbúalýðræði, bæði á sveitarstjórnarstigi og í landsmálum.

Grindvíkingar – Breytum rétt og veljum nýtt fólk til að leiða lista framsóknarmanna á laugardaginn!

Með von um þinn stuðning

Bryndís Gunnlaugsdóttir
býður sig fram í 1. sæti hjá framsóknarmönnum í Grindavík