Pólitíkin | 2. mars 2010 | 18:55:00
Lýðræði er kjölfesta árangurs
Mér er efst í huga innilegt þakklæti til allra þeirra sem studdu mig með ráðum og dáð í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Keppnautum þakka ég drengilega keppni og sjálfstæðismönnum öllum glæsilega þátttöku.
Þegar ég ákvað að gefa kost á mér í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, taldi ég mér skylt að verða við óskum þeirra fjölmörgu sjálfstæðismanna sem vildu sjá ferskt blóð í forystu flokksins, og þá ekki síst í kjölfar hrunsins í íslensku samfélagi. Breytingar á framboðslistum eru eðlileg framvinda lýðræðis enda hljóta viðhorf okkar og vinnubrögð ávallt að svara kalli tímans. Slíkar breytingar má aldrei túlka sem vanvirðu við þá sem lagt hafa sitt af mörkum í fortíðinni.
Auðvitað var fyrirséð að framboð mitt gegn sitjandi manni í bæjarstjórn myndi mæta harðri andspyrnu ýmissa flokksmanna og baráttan var vissulega spennandi. Hins vegar sýna úrslitin svo að ekki verður um villst að ég naut atfylgis grasrótarinnar í flokknum. Lýðræðið, sem Sjálfstæðisflokknum er svo mikilvægt, talaði sínu máli og þau skilaboð eru skýrt leiðarljós.
Það er eðli prófkjöra að þar takast á einstaklingar sem eru í senn keppniautar og samherjar. Nú snúa menn bökum saman undir forystu Árna Sigfússonar og við tekur baráttan um að vinna meirihluta bæjarbúa til fylgis við öflugan lista sjálfstæðismanna. Ég er reiðubúinn að axla þá ábyrgð sem fylgir setu í bæjarstjórn og mun leggja mig allan fram fyrir íbúa Reykjanesbæjar í þeim stóru verkefnum sem framundan eru. Samtaka til sigurs, sjálfstæðismenn!
Með baráttukveðju,
Gunnar Þórarinsson