Pólitíkin | 1. mars 2010 | 16:23:19
Fjölmennasta prófkjör sjálfstæðismanna af fimm stærstu sveitarfélögunum

Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ var það fjölsóttasta m.v. höfðatölu ef litið er yfir fimm stærstu sveitarfélög landsins, en sjálfstæðismenn standa fyrir prófkjörum víðs vegar um landið fyrir sveitarstjórnakosningarnar í vor.


Aðeins í Garðabæ var prófkjörið betur sótt ef borin eru saman tíu stærstu sveitarfélög landsins. En þessi tvö sveitarfélög, ásamt Seltjarnanesi og Vestmannaeyjum, hafa síðastliðin ár verið talin sterkustu vígi sjálfstæðismanna á landinu.


Mikil ánægja virðist vera meðal sjálfstæðismanna í bæjarfélaginu með prófkjörið, en 12 ár eru síðan að sjálfstæðismönnum gafst tækifæri á að stilla upp sínum lista með þessum hætti.

Hér má sjá tölur yfir stærstu sveitarfélög landsins árið 2009 og þátttöku í prófkjöri sjálfstæðismanna:

1. Reykjavíkurborg - 7173 atkvæði – íbúafjöldi: 118.427


2. Kópavogsbær - 3337 atkvæði – íbúafjöldi: 30.314


3. Hafnarfjarðarkaupstaður - 1187 atkvæði – íbúafjöldi: 25.872


4. Akureyrarkaupstaður – 1165 atkvæði – íbúafjöldi: 17.563


5. Reykjanesbær -1621 atkvæði – íbúafjöldi: 14.081


6. Garðabær - 1651 atkvæði – íbúafjöldi: 10.587


7. Mosfellsbær - 826 atkvæði - íbúafjöldi: 8.527


8. Sveitarfélagið Árborg – prófkjör fer fram 13. febrúar


9. Akraneskaupstaður - 458 atkvæði - Íbúafjöldi: 6.555


10. Fjarðabyggð – Ekki verið ákveðið með val á framboðslista.


Heimild um íbúafjölda: Hagstofa Íslands