Pólitíkin | 1. mars 2010 | 13:04:45
Kærar þakkir
Kæru íbúar,
Fyrir hönd okkar frambjóðenda í prófkjöri sjálfstæðismanna vegna bæjarstjórnarkosninganna í vor, færi ég ykkur innilegar þakkir fyrir frábæra þátttöku og sterkan stuðning.
Þetta er hlutfallslega besta þátttaka í prófkjöri í fimm stærstu sveitarfélögunum á Íslandi fyrir þessar bæjarstjórnarkosningar.
Þið völduð 4 konur og 6 karla í 10 efstu sætin, með fjölbreyttan bakgrunn og hæfileika til að takast á við verkefnin.
Röðun á listann er ekki aðalatriði. Hvort sem um er að ræða fyrsta mann eða tólfta mann á lista, höfum við öll hlutverki að gegna.
Við höfum byggt upp fjölskylduvænt og fallegt samfélag, sem hefur hlotið viðurkenningar sem slíkt langt út fyrir bæjarmörk. Á sama tíma höfum við þurft að þola þyngri atvinnuáföll en flest önnur bæjarfélög, með skyndilegu brotthvarfi Varnarliðsins þegar 900 störf töpuðust nokkrum mánuðum fyrir bankahrunið. Flestir eru sammála um að það hefur tekist vel að byggja úr þeim brotum áhugaveð verkefni að Ásbrú. Þeir erlendu aðilar sem þekkja til þeirra hörmunga sem hafa oft siglt í kjölfar brotthvarfs stórs varnarliðs úr bæjarfélögum erlendis, lýsa uppbyggingunni hér sem einni athyglisverðustu og jákvæðustu í heiminum.
Framundan er mikilvægt verkefni að styrkja atvinnustoðirnar. Þið þekkið að við höfum barist fyrir að leggja sterkan grunn að fjölþættum verkefnum eins og álveri, kísilveri, gagnaveri, heilsusjúkrahúsi, tækni- og háskóladeildum, ferðaþjónustu og flugverkefnum. Margfeldisáhrif þessara verkefna eru slík að efnahagur bæjarbúa mun rísa og fjárhagur bæjarins með. Þó erum við vel sett í dag sem bæjarfélag, með sterka eiginfjárstöðu og góðan hagnað frá síðasta ári. En verkefnið hefur verið að styrkja rekstrargrunninn. Um leið og umrædd verkefni byrja að stíga inn, eitt af öðru, styrkist rekstrargrunnurinn.
Ég hlakka til að takast á við verkefnin og skila bæjarbúum enn öflugra samfélagi, þar sem allir hafa vinnu við hæfi, þar sem okkar minnsti bróðir hefur skilning og stuðning og þar sem hamingja og heilbrigði eru í fyrrrúmi.
Árni Sigfússon