Pólitíkin | 26. febrúar 2010 | 19:40:00
Eflum atvinnu – auðgum mannlíf
2. sætið Gunnar Þórarinsson.

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fer fram á morgun 27. febrúar. Kosið er á Nesvöllum frá klukkan 10 – 18.


Mikilvægt er að allir þeir sem eru flokksbundnir og vilja styðja flokkinn taki þátt í þessum kosningum til þess að lýðræðislegt val á frambjóðendum verði í samræmi við óskir kjósenda um það hverjir veljast til forystu fyrir Sjálfstæðiflokkinn og í samfélaginu.


Ég hvet alla til að taka þátt í prófkjörinu og kjósa snemma.


Stuðningsmönnum mínum sem eiga í erfiðleikum með að komast á kjörstað er boðið upp á akstur á kjörstað. Vinsamlegast hringið í síma 421-5170.

Gunnar Þórarinsson sækist eftir 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðisflokksins.