Pólitíkin | 26. febrúar 2010 | 16:11:01
Kjósum Böðvar Jónsson í 2.sætið

Kjósum Böðvar Jónsson í 2.sætið prófkjör Sjálfstæðismanna í
Reykjanesbær laugardaginn 27. febrúar n.k.


Um helgina fer fram prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í
forystu í Reykjanesbæ og þar áður í Njarðvík og Keflavík um langt árabil. Það er því mjög mikilvægt að vel takist til við val á
listanum.
Árið 1986 hafði ég forystu um að fá Böðvar Jónsson til starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn þegar hann var kosinn til þess að sitja í Æskuly´ðsráði Njarðvíkur fyrir hönd flokksins. Fjórum árum síðar var hann kosningastjóri flokksins í Njarðvík og frá sameiningu sveitarfélaganna 1994 hefur hann verið varabæjarfulltrúi í 4 ár og síðar bæjarfulltrúi í 12 ár. Síðustu 8 ár hefur hann verið formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar og þannig starfað sem næsti maður við hlið bæjarstjóra að öllum mikilvægustu verkefnum sveitarfélagsins.
Böðvar hefur vaxið af verkum sínum og verið mikilvægur bæði fyrir flokkinn og sveitarfélagið. Hann hefur öðlast mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og skapað sér traust meðal starfsmanna sem og bæjarbúa. Hann hefur tekið þátt í undirbúningi fjölda verkefna sem nú eru í burðarliðnum í Reykjanesbæ og munu skapa mikla atvinnu á næstu árum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir bæjarbúa að ny´ta þá reynslu áfram.
Um leið og við fögnum ny´ju fólki, er einnig mikilvægt að halda í þá reynslu sem fyrir er, nú þegar ljóst er að aðeins 2 af núverandi bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins gefa kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn.
Árni Sigfússon bæjarstjóri og Böðvar Jónsson formaður bæjarráðs hafa síðustu 8 ár farið fyrir frábærum hópi bæjarfulltrúa sem hafa
gjörbreytt ásy´nd og umhverfi Reykjanesbæjar og fært hann áfram veginn. Um leið og ég veit að við sameinumst öll um Árna sem oddvita okkar er mikilvægt að veita Böðvari Jónssyni stuðning áfram í 2. sætið. Mikilvægum málum þarf að ljúka á sviði atvinnu og fjármála þar sem Böðvar hefur verið lykilmaður og bry´nt að styrkur hans í 2. sæti
listans, sem formaður bæjarráðs, fái notið sín í okkar þágu áfram.
Góðir bæjarbúar fjölmennum og tökum þátt í prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjanesbær og styðjum Böðvar í 2. Sætið og leggjum þannig grunn að áframhaldandi uppbyggingu á öflugum bæ til framtíðar.

Ingólfur Bárðarson
Fyrirverandi forseti bæjarstjórnar Njarðvíkur.