Pólitíkin | 26. febrúar 2010 | 14:02:42
Hafðu áhrif!

Prófkjör sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fer fram á Nesvöllum laugardaginn 27. febrúar n.k. milli klukkan 10 -18. Mikilvægt er að til forystu veljist sem breiðastur þverskurður af samfélaginu, konur jafnt sem karlar, ungir sem aldnir og fólk með ólíka reynslu og bakgrunn. Þannig getum við  gætt hagsmuna allra.

Ég hvet alla til að taka þátt í prófkjörinu og hafa þannig áhrif á það hverjir veljast til forystu.

Ég vil bjóða fram krafta mína til að taka þátt í því starfi sem framundan er og óska eftir þínum stuðningi til þess. Ég tel mig eiga fullt erindi inn í bæjarstjórn og vil leggja mitt af mörkum til þess að tryggja að hér séu jöfn tækifæri fyrir alla hópa samfélagsins, Reykjanesbær fyrir alla!


Ragnheiður Sif, óskar eftir 5. - 7. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna.