Pólitíkin | 26. febrúar 2010 | 13:56:25
Breytum rétt!

Kæru Grindvíkingar, ég hef ákveðið að gefa kost á mér til að þjóna ykkur næstu fjögur árin. Næsta kjörtímabil mun reyna mikið á þá einstaklinga sem veljast til setu í bæjarstjórn og mikilvægt að þeir, sama úr hvaða flokki þeir koma, séu tilbúnir að starfa að heillindum fyrir bæjarfélagið sitt og sýni kjark til að taka mikilvægar ákvarðanir.


Undanfarin ár hefur sveitasjóður okkar Grindvíkinga verið rekinn með tapi. Ljóst er að slíkt mun ekki ganga til lengdar. Nauðsynlegt er að tryggja að rekstur bæjarfélagsins sé sjálfbær svo ekki þurfi að taka hluta hitaveitusjóðsins til að standa undir almennum rekstri. Á komandi árum mun vera aukin krafa á sameiningu sveitarfélaga og grundvöllur Grindavíkur sem sjálfstæðs sveitarfélags felst í því að geta staðið undir sér án sérstakrar aðstoðar, að eiga varasjóð fyrir mögru árin og að tryggja góðan rekstur bæjarfélagsins.


Þó fjármálin séu mikilvæg þurfum við einnig að ráðast í lýðræðisumbætur í sveitarfélaginu. Í litlu samfélagi eins og Grindavík á að vera auðvelt að auka íbúalýðræði og tryggja að ákvarðanir séu teknar í eins miklu samráði við bæjarbúa og hægt er. Það er mikilvægt að þegar teknar eru stórar ákvarðanir í bæjarfélaginu að umræðan eigi sér stað á íbúastigi áður en bæjarstjórn tekur ákvörðun. Það er of seint fyrir bæjarbúa að frétta af ákvörðunum eftir bæjarstjórnarfundi þegar allt að því vonlaust er að hafa áhrif á gang mála og niðurstaða komin í málið. Að hleypa bæjarbúum fyrr að málum meðan þau eru enn á vinnslustigum getur skilað mun meiri árangri og samheldni í bæjarfélaginu.


Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til að leiða lista Framsóknarmanna í Grindavík. Ég er 29 ára gömul og er fædd og uppalin í Grindavík, dóttir Gunnlaugs Hreinssonar og Láru Marelsdóttur. Þegar ég hóf lögfræðinám í Háskólanum í Reykjavík þá flutti ég dvalarstað minn til Reykjavíkur en í haust flutti ég aftur heim til Grindavíkur. Ég er lögfræðingur og starfa hjá PricewaterhouseCoopers hf. og hef lagt sérstaklega áherslu á skatta- og stjórnsýslumál. Ég leiddi starf Framsóknarflokksins, ásamt Jóni Kristjánssyni fyrrum ráðherra og Ágústi Þór Árnasyni, um íbúalýðræði auk þess sem ég sit í sjávarútvegsnefnd flokksins sem er að móta framtíðarstefnu um sjávarútvegsmál. Ég er formaður Sambands ungra framsóknarmanna og sem slík sit ég alla þingflokksfundi Framsóknarflokksins. Ég hef mikla reynslu af því að starfa innan stjórnmála og nefnda og hef lagt sérstaka áherslu á stjórnsýslu- og sveitarstjórnarmál í mínu námi. Ég tel mig því hafa þekkingu og reynslu sem myndi nýtast vel í bæjarstjórn Grindavíkur.


Þann 6. mars 2010 verður opið prófkjör hjá framsóknarmönnum í Grindavík. Þá gefst Grindvíkingum kostur á að velja þá einstaklinga sem leiða lista Framsóknarflokksins. Ég vonast til þess að Grindvíkingar mæti á kjörstað og tryggi nýliðun í efstu sætum á lista framsóknarmanna.


Með von um þinn stuðning þann 6. mars.


Bryndís Gunnlaugsdóttir
býður sig fram í 1. sæti hjá framsóknarmönnum í Grindavík