Pólitíkin | 26. febrúar 2010 | 11:24:07
Sterkur listi þarf örugga forystu


Sterkur listi þarf örugga forystu
Prófkjör Samfylkingarinnar, K-lista og óháðra borgara er á laugardaginn.


Á laugardaginn ganga Sandgerðingar að kjörkössunum og velja frambjóðendur í sameiginlegu prófkjöri Samfylkingarinnar, K-lista og óháðra borgara. Það eru 11 frambærilegir einstaklingar sem bjóða sig fram í 6 sæti þannig að úrvalið er gott fyrir Sandgerðinga.

Þetta er merkilegt prófkjör. Listarnir tveir sem nú eru að taka saman voru samtals með um 57% fylgi í síðustu bæjarstjórnarkosningum og því ljóst að hér er að verða til lang öflugasta stjórnmálaaflið í Sandgerði. Það verður því að teljast líklegt að þeir sem veljast til forystu í þessu prófkjöri komi til með að vera í lykilstöðu í stjórn Sandgerðisbæjar næstu fjögur árin.

Verkefni bæjarstjórnar næsta kjörtímabil verða fjölbreytt og mörg hver flókin. Rekstarstaða bæjarsjóðs hefur þyngst til muna í efnahagsþrengingum síðustu missera og finna þarf leiðir til að mæta því um leið og tryggja þarf áframhaldandi góða þjónustu við íbúa í Sandgerði. Ekki er síður mikilvægt að bæjaryfirvöld í Sandgerði leggi sitt af mörkum til að færa aukinn kraft í atvinnulífið á Suðurnesjum. Þá eru stórir og flóknir málaflokkar að færast frá ríki til sveitarfélaga, svo sem málefni fatlaðra og í þeirri vinnu þarf að vanda til verka.

Það er mikilvægt að til verksins veljist sterkir einstaklingar sem hafa  reynslu og þekkingu og treysta sér til að takast á við þau verkefni sem framundan eru.  Ég hef ákveðið að bjóða fram krafta mína og óska eftir stuðningi til að leiða sterkan lista jafnaðarmanna sem myndaður verður á laugardaginn. Ég bý yfir þeirri  reynslu sem skiptir máli þegar kemur að því að glíma við flókin og erfið viðfangsefni. Ég hef setið í bæjarráði á því kjörtímabili sem nú er að líða og þar hef ég þurft að takast á við breyttar aðstæður í rekstri sveitarfélagsins. Ég þekki því vel þau verkefni sem við þurfum að takast á við næstu árin.

Um leið og ég óska eftir stuðningi í 1. sætið í sameiginlegu prófkjöri Samfylkingarinnar, K-lista og óháðra borgara þá hvet ég alla þá sem hafa kosningarétt í Sandgerði til að nýta sér tækifærið og hafa áhrif á það hverjir koma til með að sitja í bæjarstjórn næstu fjögur árin. Mætum, tökum þátt í prófkjöri á laugardaginn og höfum þannig áhrif á samfélagið sem við búum í.

Ólafur Þór Ólafsson