Pólitíkin | 26. febrúar 2010 | 08:58:45
Loftkastalinn sem hrundi

Næstkomandi laugardag mun Samfylkingin í Reykjanesbæ halda opið prófkjör fyrir alla íbúa Reykjanesbæjar eldri en 18 ára. Þátttöku í prófkjörinu hafa boðað 10 hæfir einstaklingar sem eru tilbúnir til setu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og ti l að vinna góðum málum framgang í þágu svæðisins  og íbúa þess. Ljóst er að verkefni næsta kjörtímabils verður ekki auðvelt viðfangs. Frá því að hrunið varð í október 2008 hefur orðið æ ljósara að íslenska góðærið var tekið að láni í útlöndum.  Siðblindir einstaklingar einkavæddu fyrirtæki og fjármálastofnanir í eigu ríkisins en settu þjóð sína að veði. Þjóðin mun nú þurfa að borga þessa skuld sína með skelfilegum afleiðingum fyrir marga.


Bæjarfulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Reykjanesbæjar hafa bent á næstum í heilan áratug að uppbyggingin  í Reykjanesbæ  hefur átt sér stað á nákvæmlega sama hátt þ.e að eignir hafa verið seldar án þess að lán hafi verið greidd upp. Öll uppbygging hefur síðan verið tekin að láni hjá Glitni í gegnum eignarhaldsfélagið Fasteign hf.

Skuldbinding Reykjanesbæjar vegna húsaleigu nam um áramótin 2008/2009 tólf milljörðum og hún bætist við aðrar skuldir sem voru á sama tíma 16.6 milljarðar. Heildarskuldir Reykjanesbæjar að meðtöldum skuldum dótturfyrirtækja s.s Reykjaneshafnar  og húsaleiguskuldbindingum nam á þessum tíma 28,6 milljörðum eða rúmum 2 milljónum á hvern íbúa.

Ársreikningur Reykjanesbæjar vegna 2009 liggur ekki fyrir en ljóst er að staðan hefur enn versnað þar sem íbúum hefur fækkað , skuldir hafnarinnar hafa aukist og húsaleiguskuldbinding vegna Hljómahallarinnar er ekki meðtalin en hún verður vel á þriðja milljarð króna. 

Það er því öllum ljóst, nema kannski sjálfstæðismönnum  í bæjarstjórn Reykjanesbæjar að þessa óráðssíu verður að stoppa.

Þessi  vinnubrögð eru ástæða þess að Ísland hrundi til grunna.   Að hreinsa til í rústunum er erfið vinna og oft á tíðum vanþakklát en sú vinna verður engu að síður að fara fram. Við þurfum ný gildi við stjórnun sveitarfélagsins okkar því  það er ekki nóg að mála bara framhliðna á húsinu sinu þegar allt annað er í órækt.  Ég hvet íbúa Reykjnesbæjar til þess að nýta sér rétt sinn til að taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar á laugardag og býð fram krafta mína í 1. sæti listans.   


Með kveðju,

Guðbrandur Einarsson,

bæjarfulltrúi.