Pólitíkin | 26. febrúar 2010 | 00:07:03
Forgansröðun til framtíðar
Guðný Kristjánsdóttir er nýr frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ og sækist eftir 2. - 3. sæti í prófkjörinu sem fram fer næstkomandi laugardag.
Það þekkja mig margir af störfum mínum í þágu leiklistar hér í bæjarfélaginu, ég hef starfað í áratugi með Leikfélagi Keflavíkur og verið þar burðarás. Þá hef ég starfað í leik- og grunnskólum í mörg ár og rek einnig mitt eigið fyrirtæki “Gargandi snilld“ þar sem ég gef ungum og efnilegum listamönnum tækifæri á að blómstra. Mín helstu áherslumál eru uppbygging öflugs atvinnulífs, menningarmál, skóla- og fræðslumál og fjölskyldu- og félagsmál.
Ég er fædd og uppalin í Reykjanesbæ og þekki innviði bæjarins mjög vel. Ég er bæjarfulltrúi A-listans og á sæti í bæjarráði, menningarráði og stjórn fasteigna Reykjanesbæjar.
En af hverju gef ég kost á mér á lista Samfylkingarinnar í komandi prófkjöri og af hverju ættuð þið ágætu bæjarbúar að veita mér stuðning? Svarið við því er nokkuð einfalt. Ég vil hafa áhrif og tel mig eiga fullt erindi í bæjarstjórn því ég bý yfir reynslu, er tilbúin að leggja hart að mér, er félagslynd og tel að heiðarleiki minn, frumkvæði og metnaður komi til með að nýtast mér vel sem bæjarfulltrúa.
Því óska ég eftir stuðningi í 2. - 3. sæti í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar sem fram fer laugardaginn 27. febrúar frá 10-18 í sal Verslunarmannafélags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14.