Pólitíkin | 25. febrúar 2010 | 18:44:35
Hefur heimsótt yfir 600 heimili í kosningabaráttunni
Jóhann Snorri í 4.-6. sæti
Næstkomandi laugardag göngum við Sjálfstæðismenn til kosninga í prófkjöri flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta hefur verið einstaklega góður og lærdómsríkur tími fyrir mig sem nýjan frambjóðanda og frábært tækifæri til að kynnast fjölmörgum bæjarbúum og öðlast víðtækari skilining á sveitarfélaginu okkar.
Í viðleitni minni til að ná til sem flestra hef ég ásamt Gunnhildi konu minni gengið hús úr húsi, bankað uppá og afhent kynningarbækling um framboðið. Við höfum nú þegar heimsótt yfir 600 heimili og fengið frábærar viðtökur hvar sem við höfum komið. Okkar á milli höfum við Gunnhildur rætt að því miður náum við ekki að heimsækja alla þar sem tíminn er einfaldlega of knappur. Ég hvet því þá sem ekki hafa fengið heimsókn til að hafa samband við mig í gegnum síma eða tölvpóst til að ræða málin eða fá kynningarbækling.
Þessar heimsóknir hafa gert mér fært að sýna mig og sjá fjölmarga flokksfélaga mína og kynna mig þannig beint á hagkvæman og skemmtilegan máta og um leið sýna fram á að ég er í þessari skemmtilegu baráttu af fullri alvöru og vil leggja mig allan fram til að ná árangri. Það gildir jafnt í þessu prófkjöri, kosningunum í vor og svo í þeim störfum sem ég mun taka að mér fyrir flokkinn ef ég fæ brautargengi.
Ég býð mig fram í prófkjörinu á laugardag því ég hef mikinn áhuga og metnað fyrir að taka þátt í því hvernig samfélagið okkar mun þróast á næstu árum. Ég tel að reynsla mín muni nýtast sveitarfélaginu vel við þau stóru uppbyggingarverkefni í atvinnulífinu sem eru nauðsynleg á næstu árum. Ég er einnig sannfærður um að sú staðreynd að ég er ungur fjölskyldufaðir sem mun nýta mér þjónustu í bænum næstu tugi ára muni koma sér vel þegar kemur að því að móta og framfylgja fjölskyldustefnu bæjarins til næstu ára.
Það er mikilvægt að við veljum fjölbreyttan, sigurstranglegan lista á laugardaginn til að tryggja okkur Sjálfstæðismönnum góða útkomu þegar kemur að kosningum í vor. Það er lykilatriði fyrir Reykjanesbæ að Sjálfstæðismenn fái að klára þau fjölmörgu verkefni sem eru í farvatninu.
Ég bið um ykkar stuðning í 4.-6. Sætið í prófkjörinu næstkomandi laugardag.
Kv. Jóhann Snorri Sigurbergsson
johannsnorri@gmail.com
Sími 6699656