Pólitíkin | 25. febrúar 2010 | 18:41:21
Stöndum saman um það sem skiptir máli

Nú sem aldrei fyrr þurfum við öflugt fólk í bæjarstjórn, fólk sem þekkir bæinn okkar og getur unnið saman að lausn þeirra krefjandi verkefna sem framundan eru á ábyrgan og skynsaman hátt.

Fólk sem stendur saman um það sem skiptir máli.

Á þeim erfiðu tímum sem við lifum ber okkur skylda til standa saman og forgangsraða í þágu barna og ungmenna og einnig í þágu viðkvæmra hópa sem þurfa á traustu velferðarkerfi að halda – fyrir því mun ég berjast í anda jöfnuðar og réttlætis.

Þetta gerum við til dæmis með því að endurreisa Frístundaskólann og tryggja börnum bæjarins metnaðarfulla og örugga frístundavist með hollri hreyfingu, afþreyingu og hvíld í dagsins önn.

Þetta gerum við með því að gera allt til þess að lækka kostnað fjölskyldna og einfalda aðgengi að íþróttum, frístundum og listnámi.

Þetta gerum við með því verja grunnskóla og leikskóla bæjarins niðurskurði eins og hægt er.


Við eigum að standa saman og verja grunnstoðir samfélagsins eins og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og berjast áfram fyrir því að tryggja sjálfsagða heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.


Nýjar áherslur í atvinnumálum

En undirstaðan að þessu er að fjölga atvinnutækifærum og vinna að stöðugleika í rekstri bæjarins.

Við eigum að standa saman og fylgja eftir af krafti þeirri atvinnuuppbyggingu sem í sjónmáli er með þeirri fjölgun starfa sem því vonandi fylgir.

En við þurfum líka nýjar áherslur í atvinnumálum – áherslur sem virkja dugnaðinn, hugvitið og nýsköpunarkraftinn sem býr í okkur Suðurnesjamönnum.

Við eigum að gera stjórn bæjarins opnari og aðgengilegri fyrir bæjarbúum og nýta hugmyndaauðgi og drifkraft bæjarbúa betur.

Við eigum að auka íbúalýðræði, bæjarbúar eiga að fá að taka ákvarðanir sjálfir í mikilvægum málum eins og t.d. þegar Hitaveita Suðurnesja var seld.

Við eigum að standa saman og leyfa íbúum bæjarins að taka ákvarðanir sjálf í málum sem snerta hag bæjarins til allrar framtíðar.

Ég hef mikla reynslu og áhuga á bæjarmálum og ber í brjósti brennandi metnað fyrir hönd bæjarins okkar, þess vegna sækist ég eftir 2. sætinu á framboðslista Samfylkingarinnar í komandi kosningum.

Stöndum saman um það sem skiptir máli


Eysteinn Eyjólfsson