Pólitíkin | 25. febrúar 2010 | 18:37:59
Af hverju á almenningur að skipta sér af prófkjörum?

Margir virðast vera þeirrar skoðunnar að þeim komi prófkjör flokkanna ekkert við. Sum eru lokuð og með alls kyns höftum eins og skilyrði um að kjósendur verði að ganga í viðkomandi flokk á meðan aðrir bjóða alla íbúa velkomna án nokkurra hafta. En af hverju ætti almennur borgari að taka þátt í prófkjöri?


Á undanförnum mánuðum hefur persónukjör mikið verið í umræðunni og stefnt var að því að hrynda því í framkvæmd í komandi sveitarstjórnarkosningum en það náðist þó ekki. Því eru prófkjör og forvöl leið almennings til að hafa áhrif á það hverjir koma til með að sitja í stjórn bæjarfélagsins að kosningum loknum. Þótt almenningur geti einungis kosið einn flokk 29. maí nk. þá má alveg hafa skoðun á því hverjir sitja hinum megin við borðið því þeir koma alveg jafn mikið til með að stjórna bæjarfélaginu okkar.


Ég hvet því alla íbúa Reykjanesbæjar til að láta sig varða um hverjir koma til með að vera á oddinum í komandi kosningum og nýta sinn lýðræðislega rétt.
Ég býð mig fram í 3.-5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ sem fram fer að Vatnsnesvegi 14 í sal Verslunarmannafélags Suðurnesja nk. laugardag á milli kl. 10 og 18. Aðrar hugrenningar mínar eru sýnilegar á heimasíðu minni www.hjorturgud.com.


Hjörtur M Guðbjartsson