Pólitíkin | 25. febrúar 2010 | 18:34:50
Atvinnuumsókn

Ágætu Reyknesbæingar, næsta laugardag þann 27. febrúar verður opið prófkjör hjá Samfylkingunni í Reykjanesbæ. Það verður haldið í fundarsal Verslunarmannafélags Suðurnesja að Vatnsnesvegi 14 frá klukkan 10 – kl 18.


Opið prófkjör þýðir að sá sem tekur þátt í prófkjörinu þurfi ekki að vera flokksbundinn Samfylkingunni heldur geta allir bæjarbúar sem eru 18 ára á kjördag þann 29. maí komið og valið fólk á lista Samfylkingarinnar. Það skipti miklu máli að allir íbúar geti haft áhrif á hvern þau ráða til starfa til að stýra bæjarfélaginu sínu.


Ég hef komið víða við í starfi í gegnum tíðina, ég vann á leikskólanum Gimli í kringum 7 ár, hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi í nokkur ár, ég hef unnið í fiski og leysti af hjá félagsþjónustu Reykjanesbæjar í rúmt ár. Ég bjó í Noregi í rúm 2 ár og stundaði nám við Rudolf Steiner Högskolen í Osló einnig sem ég vann þar í leikskóla. Þegar ég kom heim frá Noregi fór ég í Kennaraháskólann í þroskaþjálfanám. Eftir að ég útskrifaðist þar hef ég unnið í Hinu Húsinu, miðstöð ungs fólks í Reykjavík þar sem ég sé um, tómstundir og sumarvinnu fatlaðra ungmenna á höfuðborgarsvæðinu. Í starfi mínu felst mikið samráð og samvinna við öll nágrannasveitarfélög við Reykjavík einnig er ég í beinni samvinnu við Félags- og tryggingamálaráðuneytið, Landssamtökin Þroskahjálp, Fjölmennt, fullorðinsfræðslu fatlaðra, svo eitthvað sé nefnt. Ég sit í stjórn Listar án landamæra og hef verið tengill við hátíðina hér á Suðurnesjum sem og hef ég kennt hjá MSS í vetur hjá á námskeiðum fyrir fólk með fötlun.


Ég er formaður Samfylkingarinnar i Reykjanesbæ og hef verið virk í pólitísku starfi síðan ég var 18 ára fyrst hjá Alþýðuflokknum og síða hjá Samfylkingunni, einnig sem ég er formaður íþróttafélagsins Nes.


Það sem er mér efst í huga fyrir komandi kosningar eru atvinnumálin hér í Reykjanesbæ, það þarf að minnka atvinnuleysi, taka til hendinni og fara að koma hlutunum í framkvæmd.


Stefnt er að málaflokkur fatlaðra flytjist frá ríki yfir til sveitafélaga um áramótin 2010 – 2011 þetta er viðkvæmur málaflokkur og þarf að vanda til verka í þeim flutningi þar þarf að hugsa um hinn fatlaða einstakling, fjölskyldu hans og um þá einstaklinga bæði fagmenn og annað starfsfólk sem unnið hefur með fötluðum í gegnum tíðina og býr yfir mikilli þekkingu á sínu sviði.


Hækka þar hvatagreiðslur vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna um þriðjung svo að við getum borið okkur saman við önnur sveitarfélög. Í Hafnarfirði er t.d. greitt niður 1000 kr. á mánuði fyrir börn 6 ára og yngir, sem getur verið allt að 12.000 á ári, 2000 kr. á mánuði fyrir börn á aldrinum 7 – 12 ára sem gerir allt að 24.000 kr. á ári og 13 – 16 ára er það 3000 á mánuði sem gerir allt að 36.000 kr. á ári. Í Kópavogi er allt að 15.000 fyrir eina íþróttagrein og er hægt að fá greitt niður fyrir 2 greinar þannig að þar er hámark 30.000. Hér í Reykjanesbæ er styrkurinn 7000 kr. á ári.


Atvinnuleysi ungmenna í Reykjanesbæ eru um 15 % og vinna þarf mjög ötullega að því að halda þeim virkum í samfélaginu til að koma í veg fyrir langtímaatvinnuleysi hjá þessum hópi.


Og síðast en ekki síst þarf að koma á ábyrgri fjármálastjórn hér í bæjarfélaginu þannig að við sem hér búum getum byggt upp öruggt, gott og fjölskylduvænt samfélag fyrir okkur öll.


Þetta eru þau málefni sem eru mér ofarlega i huga þessa stundina. En auðvitað eru fleiri mál sem brenna á manneskju sem hefur trú á jafnrétti, réttlæti og heiðarleika og að allir hafi jöfn tækifæri í lífinu. Það þarf að forgangsraða hlutunum hér í bæ mun betur.


Af hverju er ég að bjóða mig fram í þessu prófkjöri og af hverju ætti ég að sitja í bæjastjórn Reykjanesbæjar. Jú ég hef brennandi áhuga á pólitík, ég er mikil jafnaðarmanneskja og vill vinna með fólki. Ég er að sækja um vinnu hjá íbúum Reykjanesbæjar, vinnu sem unnin er með fólkinu í bænum. Með þá reynslu sem ég hef tel ég mig vel tilbúna í þetta starf og óska eftir ykkar stuðning í 2 – 3 sæti.



Virðingafyllst
Jenný Þórkatla Magnúsdóttir