Pólitíkin | 25. febrúar 2010 | 18:30:08
Hjörtur M Guðbjartsson sækist eftir 3.-5. sæti hjá Samfylkingunni í Reykjanesbæ
Hjörtur Magnús Guðbjartsson heiti ég og er fæddur og uppalinn í Reykjanesbæ og bý nú í Tjarnahverfinu ásamt unnustu minni, Vilborgu Pétursdóttur félagsráðgjafanema.
Ég stundaði nám við Njarðvíkurskóla og útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Síðan þá hef ég starfað sem framkvæmdastjóri Lyfta.is hér í Reykjanesbæ.
Á undanförnum árum hef ég verið virkur í starfi Samfylkingarinnar, ég var á síðasta ári formaður Uglu – ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum, sat í 8. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar sl. vor. Einnig hef ég undanfarið setið sem aðalmaður í Atvinnu- og hafnaráði Reykjanesbæjar og er varamaður í nýskipaðri stjórn sameinaðs félags Flugstoða og Keflavíkurflugvallar ohf (Flug-kef ohf).
Eftir mikið uppgangstímabil í Reykjanesbæ sem að mestu var byggt á sandi tel ég að nú sé kominn tími á ábyrgari áherslur í fjármálastjórn og ákvarðanatöku bæjarins. Það gerum við með sameiginlegum markmiðum um að horfa til þess að nauðsynlegur niðurskurður bitni síst á þeim sem minnst mega sín.
Það má ekki gleymast að fyrir nokkrum árum var Reykjanesbær markaðssettur sem barnvænt bæjarfélag og því flykktust ungar fjölskyldur til bæjarins og því þurfum við að passa uppá að þessar fjölskyldur fái þá þjónustu sem þeim var lofað, eins og efni leyfa.
Ég er tilbúinn til að leggja mitt af mörkum og óska ég því eftir stuðningi þínum í 3.-5. sæti nk. laugardag í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ sem haldið verður við Vatnsnesveg 14 í sal Verslunarmannafélags Suðurnesja.