Pólitíkin | 25. febrúar 2010 | 18:28:43
Til sóknar - Friðjón Einarsson í 1-2. sæti

Ég hef tekið þátt í uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjum síðastliðin 16 ár og verið virkur í félags- og skólamálum. Unnið við framkvæmdastjórn og ráðgjöf, setið í stjórn fyrirtækja og stofnana. Tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi um atvinnuþróun og komið að margvíslegum verkefnum á sviði nýsköpunar í atvinnu-,markaðs- og menntamálum. Starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Reykjanesbæ og þekki því vel innviði sveitarfélagsins sem og samstarf sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Aldur: 53 ára.

Fjölskylduhagir: Giftur Sólveigu Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingi hjá HSS, 5 barna faðir, 2 barnabörn.

Menntun: Stúdent frá MT, B.ed frá KHÍ og MBA í stjórnun og viðskiptum.

Ég gef kost á mér í 1 – 2 sætið á lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ og tel að reynsla mín og menntun muni nýtast vel í þeim erfiðu verkefnum sem fram undan eru hjá bæjarfélaginu.

Prófkjörið er öllum opið.

Með vinsemd og virðingu

Friðjón Einarsson